Útboðsvefur VÍS
Um útboð VÍS
HEIM
Aðalvalmynd
Forsíða
Síðustu útboð
Vörur á lágmarki
Um útboð VÍS
Hjálp
Nýskráning

Útboð í gangi
03.02.2012 - 06.02.2012
25 ökutæki | 3 hlutir

Nýskráning
Vantar hjálp?
Um útboð VÍS

Á útboðsvef VÍS er boðið upp á muni sem hafa skemmst í óhöppum t.d. í umferðaróhöppum, bruna- eða vatnstjónum og getur því verið um ýmiss konar muni að ræða, svo sem ökutæki, vinnuvélar, hjól, ísskápa, teppi eða matvöru svo eitthvað sé nefnt.

Útboðsvefur VÍS er opinn frá kl. 20.00 á föstudögum til kl. 13.00 á mánudögum á heimasíðu VÍS. Allir hlutir eru til sýnis á mánudögum frá kl. 8.30 - 13.00 í skoðunarstöðvum félagsins. Tekið er fram hvar hlutur er staðsettur, þegar hann er boðinn út. Skoðunarstöðvar VÍS eru:

  • Smiðshöfði 3-5 | 110 Reykjavík
  • Skoðunarstöð VÍS, Kauptúni 2 Fellabæ

Á mánudögum kl. 13.00 hringja starfsmenn Þjónustumiðstöðvar VÍS í þá tilboðsgjafa sem eiga hæstu tilboðin.

Notkunarskilmálar:

  • Til að fá að bjóða í hlut á útboðsvef VÍS verður tilboðsgjafi að skrá inn nafn sitt, kennitölu og heimilisfang ásamt einu símanúmeri eða netfangi. Auk þess þarf hann að velja sér kenniorð og lykilorð.
  • Notanda er ekki heimilt að leyfa öðrum að nota aðgang sinn að útboðsvef VÍS.
  • Þeir sem misnota útboðsvef VÍS fá hvorki aðgang að tjónavefnum né heimild til að bjóða í tjónamuni.
  • Allir hlutir á útboðsvef VÍS eru seldir í því ástandi sem þeir eru í og ber tilboðsgjafa að rannsaka þá áður en gengið er frá kaupum, sbr. 20. gr. laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.
  • Tilboðsgjafi verður að hafa náð 18 ára aldri.
  • Tilboðsgjafi getur gert mest þrjú tilboð í hvern hlut og eru tilboðin ekki bindandi.
  • Reynt er að hringja í tilboðsgjafa tvisvar með 10 mínútna millibili, ef ekki næst í hann er hringt í þann sem á næsta tilboð.
  • Kaupanda ber að greiða og fjarlægja hlut innan sólarhrings frá samþykkt tilboðs, nema um annað sé samið.
  • Hægt er að ganga frá greiðslu á þjónustuskrifstofum VÍS um allt land.
  • Kaupandi greiðir eigandaskiptagjald, bifreiðagjöld og þungaskatt frá kaupdegi.
  • Öll tilboð eru með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
  • VÍS er heimilt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum, sbr. 12. gr. laga um framkvæmd útboða nr. 65/1993.

Greiðslukjör

  • Um er að ræða staðgreiðsluviðskipti. Gerð er krafa um að hlutur sé staðgreiddur áður en hann er afhentur kaupanda.

Fyrirvari
Allar upplýsingar á útboðsvef VÍS eru gefnar með fyrirvara og engin ábyrgð er tekin á mistökum sem kunna að verða vegna þess að þær reynast ekki réttar.

 
Tjónaskoðun VÍS | Opið: 08:30 - 16:30 alla virka daga
Smiðshöfði 3-5 | 110 Reykjavík | Sími: 560 5080 | Fax: 560 5081 | utbod@vis.is